Óliver yfirgefur Hött (staðfest)
- ætlar að reyna fyrir sér annarsstaðar
Markvörður Hattar Óliver Bjarki Ingvarsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Hött í bíli. Hann segist ekki vera ákveðinn hvar hann muni spila næsta sumar, en hann ætlar að skoða sín mál vel láta það ráðast á næstu vikum.
Þetta er mikill missir fyrir Hött, enda hefur hann verið einn af burðarásum liðsins undanfarin ár. Óliver hefur leikið 66 leiki fyrir Hött. Hann lék sínu fyrstu meistaraflokksleiki árið 2004 þegar hann kíkti í heimsókn yfir sumartímann, en svo fluttist hann til landsins árið 2006 og átti stóran þátt í að koma liðinu í 2.deild. Árið 2007 lék hann með liðinu í 2.deild og var kosinn leikmaður ársins ásamt því að vera valinn íþróttamaður Hattar. Óliver varð svo fyrir áfalli þegar hann sleit krossbönd í annað sinn á ferlinum og lék ekkert með liðinu 2008. Hann lék svo alla leikina í ár, nema einn þar sem hann var meiddur. Hann hefur áður leikið með Örsta í Noregi ásamt Molde FK.
Við óskum Ólivers góðs gengis hjá nýju liði!