8 ungir leikmenn semja viđ Hött
Eins og flestir vita var liđ Hattar í sumar nćr eingöngu byggt upp á heimamönnum, flestum í yngri kantinum. Ţađ er ţví ljóst ađ međ ţví ađ halda ungum og efnilegum leikmönnum liđsins áfram hjá klúbbnum er lagđur grunnur ađ góđri framtíđ. Ţađ er ţví sérlega ánćgjulegt ađ greina frá ţví ađ ţeir Brynjar Árnason, Garđar Már Grétarsson, Ingvi Ţór Georgsson, Jóhann Valur Klausen, Kristófer Kristjánsson, Óttar Guđlaugsson og Öystein Magnús Gjerde skrifuđu í dag undir samning viđ Hött til ársloka 2011 og Stefán Ingi Björnsson gerđi samning til ársloka 2010.
Ţrátt fyrir ađ allir ţessir drengir séu fćddir á árunum 1990 – 1993 eru sumir ţeirra komnir međ talsverđa reynslu af meistaraflokks fótbolta. Brynjar Árnason lék sína fyrstu m.fl. leiki fyrir Hött áriđ 2007, 2008 lék hann 13 leiki Spyrnis í 3.deild og nú í sumar var hann svo stór ţáttur af hóp Hattar og lék 18 leiki, flesta sem byrjunarliđsmađur. Garđar Már var 16 ára gamall orđinn byrjunarliđsmađur hjá Hetti síđari hluta sumarsins 2007 og lék nćr alla leiki liđsins sumariđ 2008 í 2.deild. Hann átti hinsvegar í ţrálátum meiđslum framan af ţessu sumri og kemur vafalítiđ sterkari til leiks á nćsta tímabili en Garđar hefur nú ţegar leikiđ 34 deildarleiki fyrir Hött og gćti ţví náđ 50 leikja markinu strax nćsta sumar, vćntanlega međ yngstu mönnum í sögu félagsins. Jóhann Valur ćtti einnig ađ ná 50 leikja markinu nćsta sumar, en hann hefur ţegar leikiđ 41 deildarleik fyrir félagiđ, ţann fyrsta áriđ 2006. Stefán Ingi kom til Hattar áriđ 2007, ţá á yngsta ári í 2.flokk. Framfarir hans hafa veriđ miklar og í fyrra var hann kjörinn besti leikmađur Spyrnis, sem ţá lék sem B liđ Hattar í 3.deild. Í ár gerđi hann hinsvegar vinstri bakvarđarstöđuna ađ sinni og lék nćr alla leiki Hattar í 2.deild og var svo kjörinn efnilegasti leikmađur Hattar á lokahófinu á dögunum.
Ingvi Ţór lék 1 leik međ Hetti áriđ 2007 og ţrjá í sumar, en í millitíđinni lék hann 9 leiki međ Spyrni sumariđ 2008. Öystein lék 3 leiki međ Spyrni í fyrra og var í sumar lánađur til Einherja en meiđsli settu nokkur strik í reikninginn hjá honum ţar. Öystein náđi ţrátt fyrir meiđsli ađ vera valinn besti leikmađur 2.flokks í sumar. Óttar Guđlaugs hefur nokkrum sinnum veriđ á varamanna bekk Hattar en hann átti viđ meiđsli ađ stríđa síđari hluta tímabils. Yngstur í hópnum er Kristófer sem var enn gjaldgengur í 3.flokk nú í sumar en hann náđi sínum fyrstu mfl. leikjum fyrir Hött ţegar hann kom inná í tveimur síđustu leikjum tímabilsins og ţótt standa sig vel.
Veriđ er ađ vinna í gerđ samninga viđ fleiri leikmenn og er von Hattar ađ hćgt verđi ađ tilkynna um fleiri undirskriftir á nćstunni. Ţá er tíđinda af ţjálfaramálum ađ vćnta um eđa uppúr helgi.
Myndir af undirskriftunum má sjá hér.