Sigurður Donys í Hött (staðfest)
Í dag skrifaði Sigurður Donys undir 2 ára samning við Hött. Donys lék með Einherja á síðustu leiktíð, þar lék hann 15 leiki og skoraði 14 mörk. Það þarf vart að taka það fram að Donys er gríðarlega sterkur leikmaður sem kemur til með að styrkja lið Hattar mikið. Donys sem er 23 ára gamall þótti lengi með efnilegustu leikmönnum Austurlands og gerði 10 mörk í 14 leikjum með Einherja í 3.deild á sínu fyrsta tímabili í meistaraflokk árið 2003, aðeins 17 ára gamall. Hann hefur hinsvegar átt við meiðsli að stríða undanfarin ár en sýndi það í sumar að hann er að nálgast sitt gamla form.
Höttur.tk býður Donna velkominn í Hött