Anton Ástvaldsson áfram hjá Hetti
Varnarmaðurinn sterki Anton Ástvaldsson verður áfram í herbúðum Hattar á komandi leiktíð. Anton sem var valinn leikmaður ársins 2008, spilaði flesta leikina í ár en missti eitthvað úr vegna utanlandsferðar.
Þetta eru gleðifréttir, enda einn reyndasti leikmaður liðsins þrátt fyrir ungan aldur.
Samtals hefur hann leikið 71 leik fyrir Hött og skorað í þeim 8 mörk.