Tuesday, September 22, 2009
Lok tímabils og lokahóf

Höttur lauk leik í 2.deildinni um helgina með jafntefli á Fellavelli gegn BÍ/Bolungarvík. Fyrir leik mátti búast við að róðurinn yrði þungur þar sem vantaði þá Stefán Eyjólfs, Jónatan Loga, Stefán Inga, Jóhann Klausen, Björgvin Karl og Brynjar Árna sem allir hafa verið oftar en ekki í byrjunarliði Hattar í sumar.

Fyrstu 20 mínútur leiksins voru enda virkilega slæmar og komust gestirnir yfir eftir að Garðar hafði misst boltann að hætti Rio Ferdinand á miðjunni. Smám saman komust Hattar menn þó inn í leikinn og þegar flautað var til hálfleiks virtist markið liggja í loftinu, en fjölmörg góð færi höfðu farið forgörðum auk þess sem þrumuskot Elvars með vinstri hafði endað í slá.

Síðari háfleikur hófst líkt og sá fyrri endaði og heimamenn voru oft á tíðum að spila virkilega flottan bolta þó færanýtingin hafi ekki verið til fyrirmyndar. Það var svo Anton Ástvalds sem jafnaði leikinn eftir að Vilmar hafði tekið vel á móti löngu innkasti og lagt boltann á höfuðið á Antoni inn í markteig. Fleiri urðu mörkin hinsvegar ekki þrátt fyrir fjölda færa hjá báðum liðum á lokakaflanum.

Liðið í leiknum: Óli - Ingvi, Toni, Lundi, Bjartmar - Óttar, Rabbi, Elvar - Ívar, Vilmar, Garðar. Kristófer leikmaður 3.flokks kom svo inná fyrir Ívar og stóð sig vel.

Niðurstaðan því sú sama og spáð var í spá fyrirliða og þjálfara fyrir tímabilið eða 7 sæti sem verða að teljast nokkur vonbrigði m.v. fyrri umferðina.

Um kvöldið fór svo fram lokahóf rekstrarfélagsins og voru eftirtaldir verðlaunaðir:

Mfl kk
Bestur : Stefán Þór Eyjólfsson
Efnilegastur: Stefán Ingi Björnsson
Markahæstur: Vilmar Freyr Sævarsson

Mfl kvk
Best: Hjálmdís Vilhjálmsdóttir
Efnilegust: Jóna Ólafsdóttir
Markahæstar: Elisabet Sara Emilsdóttir og Fanney Þórunn Kristinsdóttir

2.fl.
Bestur: Öystein Gjerde
Efnilegastur: Ástráður Ási Magnússon
Markahæstur: Garðar Már Grétarsson




Thursday, September 17, 2009
Þakkir frá Hrafni

Kæru Hattarmenn, 
Bestu þakkir fyrir stuðninginn í sumar, hann hefur verið ómetanlegur á þessum síðustu og verstu tímum.

Eins og þið kannski vitið þá fótbrotnaði ég í leik með 2.fl í sumar þar sem báðar pípurnar í leggnum brotnuðu illa. Fyrstu dagarnir eftir fótbrotið voru ekki auðveldir þar sem beinin lágu ekki vel og ollu mér miklum sársauka. Eftir að hafa farið til Akureyrar og látið rétta beinin skánaði ég til muna og í dag er þetta allt á réttri leið og vonast ég til að vera kominn á gott ról sem fyrst.

Mig langar til að þakka Rekstrarfélagi Hattar, þeim sem styrktu mig og og síðast en ekki síst þeim sem tóku þátt í sölu húsnúmerahappdrættisins.

Bestu kveðjur,
Hrafn Guðlaugsson




Thursday, September 10, 2009
Þjálfaraskipti

Njáll Eiðsson hættir eftir tímabilið
- Tveir leikir eftir

Þjálfari Hattar s.l. þrjú ár Njáll Eiðsson mun ekki stýra liðinu áfram í 2.deild á næsta ári. Hann er ekki hættur í þjálfun, en þar sem hann er búsettur í Reykjavík og þurfti  að vera mikið í burtu frá fjölskyldu sinni, fannst honum að það sé kominn tími til að einhver annar taki við. Njáll ætlaði að þjálfa liðið í eitt ár, en er búinn að vera með liðið í 3 ár.

Njáll mun stýra liðinu í þeim tveim leikjum sem eru eftir á móti Njarðvík úti og BÍ/Bolungarvík heima.

Höttur.tk þakkar Njáli fyrir þessi þrjú frábæru ár, og óskum honum góðs gengis!

Höttur hafa sent auglýsingu á fotbolti.net þar sem óskað er eftir þjálfara hjá meistaraflokksliðum Hattar, en Óliver B. Ingvarsson mun einnig hætta þjálfun hjá meistaraflokk kvenna. Sjá nánar á síðu kvennaliðsins.

Frétt á fotbolti.net
Auglýsing á fotbolti.net



Posted at 13:44 by haffi
|tjáðu þig um þetta|  




Tuesday, September 08, 2009
Lokahóf

Laugardaginn 19 september mun Rekstrarfélag Hattar vera með lokahof í Valaskjálf. Húsið opnar kl 20:00. Verð, matseðill og dagskrá mun koma inn á næstu dögum. Endilega takið þetta kvöld frá og skemmtið ykkur með okkur. Áhugasamir hafið samband við Víglund s:8678562

Rekstrarfélagið vill einnig koma fram þökkum til þeirra sem sáu sért fært að styrkja Hrafn Guðlaugsson leikmann 2.flokks Hattar. Hann fótbrotnaði mjög illa í leik gegn Fjölni í sumar og varð þar af leiðandi fyrir miklu vinnutapi.

Posted at 17:08 by haffi
|(1) búnir að tjá sig|  




Saturday, September 05, 2009
Tap í kaflaskiptum leik

2.deild karla 2009 - 20.umferð
Fellavöllur 04.09.2009
Höttur 1 (Óttar Steinn Magnússon) 
ÍH/HV 2 (Óttar Steinn Magnússon sm, Þórarin Máni Borgþórsson)

Þrátt fyrir að Egilsstaðabúar hefðu gert öll þrjú mörk kvöldsins voru það gestirnir úr Hafnafirði sem fögnuðu sigri á Fellavelli í kvöld. Jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en smámsaman náðu heimamenn tökum á leiknum og léku oft á tíðum ágætis fótbolta. Óttar Steinn kom Hetti yfir eftir klafs í teignum eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik og þannig var staðan í hálfleik þrátt fyrir að Brynjar Árna hafi verið grátlega nálægt sínu fyrsta deildarmarki í mfl þegar góður markvörður ÍH náði að verja glæsilega þrumuskot hans með vinstri, einnig tókst honum að vera fyrir skoti Antons úr færi sem verður líklega að teljast með betri færum tímabilsins.

Í upphafi þess síðari höfðu heimamenn öll tök á leiknum og virtist aðeins spurning hvenær þeir bættu við marki. Það var því eins og köld vatnsgusa framan í Hattarmenn þegar Anton ætlaði að hreinsa að því er virtist hættulítinn bolta í teignum og bombaði honum í afturendan á Óttari og þaðan fór knötturinn á talsverðri ferð í netið. Eftir þetta virtist hið unga lið Hattar hreinlega fara á taugum og gerðu fátt að viti það sem eftir var. Nær engöngu var treyst á langar sendingar fram og miðjan sem hafði staðið sig ágætlega fram að þessu hvarf algjörlega. Þetta notfærðu leikmenn ÍH sér svo að sjálfsögðu og fengu nokkur færi á lokamínútunum, m.a. sýndi Hallur þá kurteisi að brenna af dauðafæri af markteig. Vallarstarfsmaður Vilhjálmsvallar í fyrra, Þórarin Máni Borgþórsson sýndi sínum gömlu félögum ekki sömu kurteisi og skoraði laglegt mark í uppbótartíma og tryggði gestunum öll þrjú stigin.

Enn einn leikurinn á þessu tímabili þar sem menn virðast missa dampinn undir lok leiks og væri athyglisvert að sjá tölfræði yfir síðustu 15 mínútur liðsins í sumar. En eitt er víst og það er að þetta tap verður ekki skrifað á frábæran dómara leiksins Jan Eric Jessen. En þessi 21 árs gamli Akureyringur leyfði leiknum að fljóta vel og hélt sinni línu allan tíman báðum liðum til ánægju.

Byrjunarlið Hattar sem lék allan leikinn var: Oliver - Stefán Ingi, Anton, Víglundur, Bjartmar - Brynjar, Óttar, Rafn - Elvar, Garðar, Kalli. Á bekk voru Bjarni Viðar, Ingvi, Kristófer, Ingimar og Ási.




Monday, August 31, 2009
Dómarinn eignaði sér leikinn í tapi

2.deild karla 2009 - 19.umferð
Blönduósvöllur 30.8.2009
Hvöt 3 (Muamer x2, Egill Björnsson) 
Höttur 2 (Garðar Már Grétarsson, Jóhann V Klausen)



mynd: ksi.is

 

Hattarmenn ferðuðust til Blönduósar í dag en þar mættu þeir heimamönnum í Hvöt. Fyrir leikinn var Hvöt í 5.sæti deildarinnar með 27 stig en Höttur í því sjötta með 26 stig.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, þó Hvatarmenn hafi verið meira með boltann þá sköpuðu þeir sér fá góð færi. Brynjar fékk besta færi Hattar í hálfleiknum en skot hans fór yfir mark heimamanna. Vilmar Freyr var þó sloppinn einn í gegn um miðjan hálfleik en var tekinn niður af miðverði Hvatar.  Dómari leiksins, Þórður Már Gylfason, ákvað hins vegar að dæma ekkert þó svo að hann hafi verið ágætlega staðsettur og búinn að setja flautuna upp í munninn, merkileg ákvörðun. Þá sluppu Hvatarmenn við vítaspyrnu þegar einn leikmaður þeirra klifraði upp á bak Antons eftir langt innkast Elvars.

Hattarmenn voru síðan heppnir nokkrum mínútum síðar að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar boltanum var spyrnt í hönd Antons. Staðan þar með 0-0 í hálfleik í rokinu á Blönduósi.

Seinni hálfleikur byrjaði af krafti þegar Jói tók velheppnaða aukaspyrnu utan af vinstri kanti sem rataði á Garðar Má sem tók glæsilega á móti boltanum og setti hann í stöng og inn. Staðan þar með orðinn 0-1 og fjörið rétt að byrja. 10 mín síðar slapp framherji Hvatar í gegn, allir leikmenn Hattar stoppuðu og bjuggust við rangstöðudómi en svo varð ekki og staðan þar með 1-1. Þannig var það þó ekki lengi, Jói Klausen fékk góða sendingu innfyrir vörn heimamanna og skoraði auðveldlega á markvörð Hvatar, vel gert hjá Jóa.

Aðeins örfáum andartökum síðar slapp framherji Hvatar, Muamer Sadikovic,  í gegn eftir stungusendingu. Hann reynir að fara framhjá Óliver sem nær að setja hönd í knöttinn og slá boltanum í löpp Sadikovic og í markspyrnu. Dómari leiksins sá hins vegar eitthvað sem enginn annar sá og bendir rakleiðis á vítapunktinn við lítin fögnuð Hattarmanna, enda óskiljanleg ákvörðun. Línuvörðurinn hafði hins vegar flaggað Sadikovic rangstæðan og þar með varð dómarinn að breyta dóm sínum. Þetta var þó aðeins upphafið á ruglinu því á lokamínútum leiksins dæmir hann aftur vítaspyrnu, og aftur skiljum við lítið í þeim dómi. Aukaspyrna Hvatar berst á fjærstöng þar sem Bjartmar og heimamaður stökkva upp í skallaeinvígi þar sem hvorugur þeirra nær til boltans og markspyrna því staðreynd. Hinn margumtalaði Þórður Már blæs hins vegar í flautuna og dæmir vítaspyrnu og eftir smá umhugsunartíma spjaldar hann Bjartmar fyrir „brotið"! Hattarmenn eru skiljanlega ekki sáttir við dóminn en fá litlu breytt í þetta skiptið. Sadikovic setur inn jöfnunarmarkið úr spyrnunni og staðan orðinn 2-2. Allur vindur fór úr Hetti eftir þetta og Hvöt skoraði sigurmarkið eftir mikla þvögu í teignum á 90 mín. Ívar slapp síðan í gegn stuttu seinna en var óheppinn og færið rann út í sandinn. Þá var brotið á leikmanni Hvatar sem lág hreyfingarlaus í grasinu í heilar fimm mínútur án þess að dómari né aðstoðarmenn hans sáu ástæðu til að fá inn börur eða a.m.k hjálpa honum af velli. Þegar hann loks stóð upp aftur var flautað til leiksloka, sem segir okkur það að dómarinn bætti engu við leikinn.

Dómari leiksins, Þórður Már Gylfason, hafði enginn tök á honum og var vægast sagt lélegur. Þetta er þriðji leikurinn sem hann dæmir hjá Hetti í sumar, við skulum aðeins rifja upp fyrri leiki. Á móti Magna á heimavelli sleppir hann augljósri vítaspyrnu undir lok leiksins og spjaldar í staðinn Vilmar fyrir leikaraskap. Ljósmyndir frá leiknum sýna að um klárt brot var að ræða. Þá dæmdi hann einnig leik Reynis og Hattar í Sandgerði, en þar ákvað hann upp úr þurru að sýna Óttari rauða spjaldið þegar brotið hafði verið á honum. Aðeins vakandi línuvörður kom í veg fyrir það spjald. En Þórður missti þann leik út í algjört rugl þar sem bæði lið fengu að finna fyrir því.  Þórður Már er örugglega drengur góður og gerir sitt besta á vellinum, en í þeim leikjum sem við höfum séð til hans hefur hann á engan hátt sýnt hluti sem segja til um að hann eigi að fá að dæma í þessarri deild – hvað þá í efri deildum!

Næsti leikur Hattar er á föstudaginn n.k á heimavelli á móti Tóta Bogg, Hall og félögum í ÍH/HV, við vonumst eftir hagstæðari úrslitum í þeim leik.

Liðið í dag: Óliver - Bjartmar, Anton, Rafn, Stefán Ingi - Brynjar, Elvar, Óttar - Jóhann, Vilmar, Garðar
Bekkur: Bjarni Viðar (m), Ási, Björgvin Karl, Ívar Karl

 

Posted at 15:28 by haffi
|(10) búnir að tjá sig|  




Tuesday, August 25, 2009
Happdrætti

Vinningshafar í húsnúmera happdrætti Hattar Rekstrarfélags eru eftirfarandi:
 
1. verðlaun - miði nr. 308 - Túngata 23
2. verðlaun - miði nr. 677 - Bjarkarhlíð 2 b
3. verðlaun - miði nr. 170 - Einbúablá 27
4. verðlaun - miði nr. 899 - Koltröð 8
5. verðlaun - miði nr. 341 - Útgarður 7, 102
6. verðlaun - miði nr. 226 - Hléskógar 1-5, 202
7. verðlaun - miði nr. 499 - Norðurtún 1
8. verðlaun - miði nr. 994 - Tjarnarlönd 13 b
9. verðlaun - miði nr. 801 - Hamrahlíð 4
10. verðlaun - miði nr. 1106 - Mánatröð 3
11. verðlaun - miði nr. 312 - Botnhlíð 31
12. verðlaun - miði nr. 287 - Kelduskógar 1-3, 402
13. verðlaun - miði nr. 977 - Árskógar 1 b, 201
14. verðlaun - miði nr. 80 - Bjarkarsel 1
15. verðlaun - miði nr. 374 - Árskógar 1 c, 202
16. verðlaun - miði nr. 1194 - Koltröð 24
17. verðlaun - miði nr. 877 - Kelduskógar 10
18. verðlaun - miði nr. 569 - Laufás 1
19. verðlaun - miði nr. 1199 - Koltröð 14 a
20. verðlaun - miði nr. 878 - Kelduskógar 12
21. verðlaun - miði nr. 143 - Dalskógar 11
22. verðlaun - miði nr. 196 - Furuvellir 8
23. verðlaun - miði nr. 119 - Brekkusel 2
24. verðlaun - miði nr. 185 - Faxatröð 9
25. verðlaun - miði nr. 263 - Kaupvangur 45, 203
26. verðlaun - miði nr. 949 - Útgarður 6, 103
27. verðlaun - miði nr. 469 - Reynivellir 14
 
Verðlaun má nálgast hjá Víglundi í Hettunni, sími 867-8562

Posted at 14:22 by haffi
|tjáðu þig um þetta|  




Saturday, August 22, 2009
Sigur

2.deild karla 2009 - 18.umferð
Vilhjálmsvöllur 22.8.2009
Höttur 2 (Stefán Þ. Eyjólfsson x2) 
KS/Leiftur 1 (Ragnar Hauksson)



mynd: ksi.is

Hattarmenn mættu ákveðnir til leiks í dag og kom ekkert annað til greina en að taka þrjú stig. Stefán Þór Eyjólfsson skoraði fyrsta markið með þrumuskoti af 30m færi sem markvörður þeirra átti ekki möguleika í. Stefán skoraði einnig seinna mark Hattar, en það var úr víti eftir að Vilmar var felldur. Ragnar Hauksson náði að minnka muninn úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Stefán Þ fékk svo að líta rauða spjaldið í lok leiks, en hann hefði ekki náð næsta leik hvort sem er, þar sem hann er á leið til Danmerkur og verður þar næstu mánuðina. Fínn endir á góðu sumri fyrir drenginn!


Eftir leikinn eru strákarnir með 26 stig í 5.sæti þegar fjórir leikir eru eftir.

Pétur, kláraðu umfjöllunina....!


Liðið: Óliver - Bjartmar, Rafn, Víglundur, Stefán Ingi - Óttar, Stefán Þ (c) - Logi - Jóhann, Vilmar, Elvar.

Bekkur: Ívar, Garðar, Ási, Björgvin Karl og Brynjar Árnason.

Posted at 22:38 by haffi
|tjáðu þig um þetta|  

Síðasti leikur sumarsins á Vilhjálmsvelli

2.deild kk 18. umferð
Höttur - KS/Leiftur
Laugardag kl 14:00

Höttur tekur á móti KS/Leiftri í dag í síðasta leik sumarsins á Vilhjálmsvelli en hann mun gangast undir björgunartilraunir eftir leikinn og verða þeir leikir sem eftir eru spilaði á Fellavelli.

Höttur gerði góða ferð á Ólafsfjörð fyrr í sumar og sigraði KS/Leiftur þá með tveimur mörkum gegn engu þar sem Jói og Vilmar skoruðu mörkin. Anton Ástvaldsson tekur út leikbann hjá Hetti en að öðru leiti ætti Njáll að hafa úr öllum mannskapnum að velja.

Allir á völlinn - áfram Höttur




Monday, August 17, 2009
Góður sigur í Sandgerði

2.deild karla 2009 - 17.umferð
Sparisjóðssvöllurinn 15.8.2009
Reynir S 0 
Höttur 2 (Jónatan Logi Birgisson og Vilmar Freyr Sævarsson)



mynd: ksi.is

Hattarmenn gerðu góða ferð í Sandgerði á laugardaginn var þegar þeir tóku á móti Reyni S. Höttur höfðu aðeins tekið eitt stig í seinustu fjórum leikjum en náðu að snúa blaðinu við. Jónatan Logi kom okkar mönnum yfir með skalla á 52.mín en Vilmar Freyr skoraði annað markið einnig með skalla á 77.mín.

Með sigrinum eru því Höttur komnir með 23 stig í 6.sæti deildarinnar. KS/Leiftur geta jafnað þá að stigum ef þeir ná að sigra Hamar, en þeim leik var frestað vegna svínaflensu hjá Hamarsmönnum.

Liðið: Óliver - Anton, Rafn, Víglundur, Bjartmar - Óttar, Stefán, Logi - Garðar, Vilmar, Jóhann.

Bekkur: Stefán Ingi, Elvar, Björgvin Karl og Brynjar Árnason.

Posted at 20:42 by haffi
|(1) búnir að tjá sig|  




Previous Page Next Page






inná síðunni


   









Mót m.fl kk

  • Deildarbikarinn 2005
  • Deildarbikarinn 2006
  • Deildarbikarinn 2007
  • Deildarbikarinn 2008
  • Deildarbikarinn 2009
  • 3.deild D riðill 2005
  • 3.deild D riðill 2006
  • Úrslitakeppni 2005
  • Úrslitakeppni 2006
  • VISA bikarinn 2005
  • VISA bikarinn 2006
  • VISA bikarinn 2007
  • VISA bikarinn 2008
  • VISA bikarinn 2009
  • 2.deild 2007
  • 2.deild 2008
  • 2.deild 2009




    Mót m.fl kvk

  • 1.deild B riðill 2005
  • 1.deild B riðill 2006
  • 1.deild B riðill 2007
  • 1.deild B riðill 2008
  • 1.deild A riðill 2009
  • Úrslitakeppni 2005
  • Úrslitakeppni 2007
  • Deildarbikar 2006
  • Deildarbikar 2008


    Höttur.tk könnunin


    L
    E
    I
    K
    M
    A
    Ð
    U
    R

    Á
    R
    S
    I
    N
    S

    2
    0
    0
    9
    Hver að þínu mati var besti leikmaður Hattar 2009?

    Óliver Bjarki
    Bjartmar
    Stefán Ingi
    Víglundur
    Rafn
    Anton
    Björgvin Karl
    Brynjar
    Elvar Þór
    Stefán Þór
    Jónatan Logi
    Vilmar Freyr
    Óttar Steinn
    Jóhann Klausen
    Ívar Karl
    Garðar Már


    Fótbolti

  • Fotbolti.net
  • Gras.is
  • Soccerbase.com
  • Planetfootball.com
  • Soccernet.com
  • Teamtalk.om
  • Livescore.com
  • Soccer.com
  • ManUtd.is
  • Liverpool.is
  • Arsenal.is
  • Chelsea.is


    Hattarar um allan heim

  • IFK Göteborg (Hjalli Jóns)
  • Ringsted IF (Anders & Kristian)
  • Huginn (Binni Skúla og Jeppe)
  • Fylkir (Freysi)
  • Grindavík (Eysteinn og Óttar)
  • Örsta IL (Óliver)
  • Selfoss (Gunnar Rafn)
  • Kalli (MK)
  • Tóti og Henrik (Þróttur)
  • Uros (Jönköping)


    2.deild 2008

  • Njarðvík
  • Grótta
  • Hamar
  • Afturelding
  • BÍ/Bolungarvík
  • Magni
  • ÍH/HV
  • Víðir
  • Tindastóll
  • Reynir S.
  • Hvöt


    Önnur félög

  • Einherji
  • Fjarðabyggð
  • Huginn
  • Snörtur
  • Snörtur - blogg
  • Sindri
  • Neisti D
  • Leiknir F
  • Hrefnkell Freysgoði
  • Þristurinn
  • ÍBV
  • KR
  • Víkingur R.
  • Leiknir R.
  • Dalvík/Reynir
  • Álftanes
  • Skallagrímur
  • Fjölnir
  • Stjarnan
  • Víkingur Ó.




    Annað

  • Hattarlagið
  • Opinber heimasíða Hattar
  • Höttur - Handboltinn
  • Höttur - spjallsíða körfuboltans
  • Egilsstaðir.is
  • Austurlandið.is
  • Austurglugginn
  • Mbl.is
  • Visir.is
  • KSÍ
  • Menntaskólinn á Egilsstöðum


    <---- tölfræði fyrir höttur.tk
    Hafðu samband

    Höttur.tk s: 846-7255
    hafthor.atli@simnet.is







  • If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




    rss feed