Entry: 8 ungir leikmenn semja við Hött Wednesday, October 07, 2009



Eins og flestir vita var lið Hattar í sumar nær eingöngu byggt upp á heimamönnum, flestum í yngri kantinum. Það er því ljóst að með því að halda ungum og efnilegum leikmönnum liðsins áfram hjá klúbbnum er lagður grunnur að góðri framtíð. Það er því sérlega ánægjulegt að greina frá því að þeir Brynjar Árnason, Garðar Már Grétarsson, Ingvi Þór Georgsson, Jóhann Valur Klausen, Kristófer Kristjánsson, Óttar Guðlaugsson og Öystein Magnús Gjerde skrifuðu í dag undir samning við Hött til ársloka 2011 og Stefán Ingi Björnsson gerði samning til ársloka 2010.

Þrátt fyrir að allir þessir drengir séu fæddir á árunum 1990 – 1993 eru sumir þeirra komnir með talsverða reynslu af meistaraflokks fótbolta. Brynjar Árnason lék sína fyrstu m.fl. leiki fyrir Hött árið 2007, 2008 lék hann 13 leiki Spyrnis í 3.deild og nú í sumar var hann svo stór þáttur af hóp Hattar og lék 18 leiki, flesta sem byrjunarliðsmaður. Garðar Már var 16 ára gamall orðinn byrjunarliðsmaður hjá Hetti síðari hluta sumarsins 2007 og lék nær alla leiki liðsins sumarið 2008 í 2.deild. Hann átti hinsvegar í þrálátum meiðslum framan af þessu sumri og kemur vafalítið sterkari til leiks á næsta tímabili en Garðar hefur nú þegar leikið 34 deildarleiki fyrir Hött og gæti því náð 50 leikja markinu strax næsta sumar, væntanlega með yngstu mönnum í sögu félagsins. Jóhann Valur ætti einnig að ná 50 leikja markinu næsta sumar, en hann hefur þegar leikið 41 deildarleik fyrir félagið, þann fyrsta árið 2006. Stefán Ingi kom til Hattar árið 2007, þá á yngsta ári í 2.flokk. Framfarir hans hafa verið miklar og í fyrra var hann kjörinn besti leikmaður Spyrnis, sem þá lék sem B lið Hattar í 3.deild. Í ár gerði hann hinsvegar vinstri bakvarðarstöðuna að sinni og lék nær alla leiki Hattar í 2.deild og var svo kjörinn efnilegasti leikmaður Hattar á lokahófinu á dögunum.

Ingvi Þór lék 1 leik með Hetti árið 2007 og þrjá í sumar, en í millitíðinni lék hann 9 leiki með Spyrni sumarið 2008. Öystein lék 3 leiki með Spyrni í fyrra og var í sumar lánaður til Einherja en meiðsli settu nokkur strik í reikninginn hjá honum þar. Öystein náði þrátt fyrir meiðsli að vera valinn besti leikmaður 2.flokks í sumar. Óttar Guðlaugs hefur nokkrum sinnum verið á varamanna bekk Hattar en hann átti við meiðsli að stríða síðari hluta tímabils. Yngstur í hópnum er Kristófer sem var enn gjaldgengur í 3.flokk nú í sumar en hann náði sínum fyrstu mfl. leikjum fyrir Hött þegar hann kom inná í tveimur síðustu leikjum tímabilsins og þótt standa sig vel.

Verið er að vinna í gerð samninga við fleiri leikmenn og er von Hattar að hægt verði að tilkynna um fleiri undirskriftir á næstunni. Þá er tíðinda af þjálfaramálum að vænta um eða uppúr helgi.

Myndir af undirskriftunum má sjá hér.

   1 comments

Hilmar
October 10, 2009   05:17 PM PDT
 
Þetta er gaman að sjá. Nú vil ég sjá Elvar, Óttar og síðan Högna gera samninga.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments